Félagsmenn
21
Fjöldi fólks sem hefur þegar skráð áhuga á að taka þátt í starfi félagsins.
Hér geta áhugasamir skráð sig í FUF, fylgst með fréttum, skoðað myndir úr starfinu, lesið um viðburði og haft samband við félagið.
Félagsmenn
21
Fjöldi fólks sem hefur þegar skráð áhuga á að taka þátt í starfi félagsins.
Viðburðir
6 á önn
Árinu er skipt upp í tvær annir og haldnir sex viðburðir á hvorri önn.
Markmið félagsins
Tengja og efla
Að veita ungu fólki tækifæri til að kynnast hvort öðru, sérfræðingum og starfsemi sem skapar virði fyrir samfélagið.
Skráning
Skráðu þig í félagið til að fylgjast með starfinu, taka þátt í viðburðum og verða hluti af öflugu samfélagi ungs framtaksfólks um allt land. Félagsgjald er 6.000 kr. á önn og nýtist að öllu leyti í félagsstörf.
Um okkur
Félag ungs framtaksfólks, eða FUF, er vettvangur fyrir ungt fólk sem vill mynda tengsl, læra af öðrum og taka þátt í starfsemi sem skapar virði fyrir samfélagið. Tilgangur félagsins er að veita ungu fólki tækifæri til að kynnast hvort öðru, sérfræðingum og ólíkri starfsemi sem styrkir einstaklinga og samfélag.
01
Tilgangi sínum hyggst félagið ná með reglulegum viðburðum þar sem félagsmenn og sérfræðingar, meðal annars innan fyrirtækja og stjórnvalda, koma saman til að þróast, miðla þekkingu og efla ungt fólk.
02
Einnig verður byggður upp vettvangur á netinu þar sem félagsmenn geta átt umræður, deilt hugmyndum og skipulagt hittinga, þannig að tengslin og samtalið haldi áfram utan viðburða.
Fréttir
Fylgstu með því sem er efst á baugi í starfi félagsins, viðburðum og nýju efni.

28. mars 2026
Hópurinn heimsótti og fékk innsýn í starfsemi og framleiðslu First Water í Þorlákshöfn, en fyrirtækið er með þeim stærri á vaxandi markaði fyrir landeldi á laxi.
Lesa meira
23. mars 2026
Félag ungs framtaksfólks (FUF) var formlega stofnað þann 23. mars með það að markmiði að skapa vettvang fyrir ungt fólk til að tengjast, læra og hafa jákvæð áhrif á samfélagið.
Lesa meiraMyndasafn
Svipmyndir úr viðburðum, heimsóknum og samveru félagsins.