
23. mars 2026
Stofnun FUF
Félag ungs framtaksfólks (FUF) var formlega stofnað þann 23. mars með það að markmiði að skapa vettvang fyrir ungt fólk til að tengjast, læra og hafa jákvæð áhrif á samfélagið.
Stofnun félagsins markar upphaf nýs tækifæris fyrir ungt fólk sem hefur áhuga á að efla sig, byggja upp tengslanet og kynnast sérfræðingum úr ólíkum greinum. Með reglulegum viðburðum og virkri þátttöku félagsmanna mun FUF stuðla að þróun og vexti ungs framtaksfólks á Íslandi.
Áhersla félagsins verður á að skipuleggja viðburði þar sem félagsmenn fá tækifæri til að hitta sérfræðinga úr atvinnulífinu og stjórnsýslu, skiptast á hugmyndum og læra hvert af öðru. Einnig er stefnt að því að byggja upp öflugan vettvang á netinu þar sem félagsmenn geta átt í umræðum, deilt hugmyndum og skipulagt hittinga.
Stofnendur félagsins eru spenntir fyrir komandi starfi og hvetja áhugasama til að fylgjast með og taka þátt í uppbyggingu FUF frá upphafi.