
28. mars 2026
First Water heimsókn
Hópurinn heimsótti og fékk innsýn í starfsemi og framleiðslu First Water í Þorlákshöfn, en fyrirtækið er með þeim stærri á vaxandi markaði fyrir landeldi á laxi.
Hópurinn heimsótti framleiðslustöð First Water í Þorlákshöfn þar sem Stefán Ágústsson, rekstrarstjóri félagsins, tók á móti okkur.
Stefán kynnti starfsemina og framtíðarsýn fyrirtækisins, en að því loknu fékk hópurinn skoðunarferð um stöðina.
Þar fékk hópurinn innsýn í hvernig laxinn er alinn upp í hátæknikerum fyrir sölu um allan heim.
Landeldi er atvinnugrein í örum vexti og skipar mikilvægan sess í framtíðarvexti Íslands, mataröryggi og framleiðslu á hagkvæmum gæðalaxi.